Nunnuklaustrið

Velkomin í nunnuklaustið

30.04.2006 11:47:47 / mongo

Er að prófa nýtt og betra kerfi

 http://nunnan.bloggar.is/

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 10:37:30 / mongo

Úrlslitin úr skoðannakönunn

Er líf þitt eins og sjónvarpsefni

Já það er eins og glæstarvonir 22%

Já það er eins og leiðarljós 0%
Já það er eins og rómantísk bíómynd 11%
Já það er eins og hryllingsmynd 0%
nei líf mitt er bara blákaldur veruleikinn 67%

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 15:06:21 / mongo

Fyrir hana Gunnsu mína

Jæja víst að hún Gunnsa mín er í prófum þá ákvað ég að gera henni til geðs:lol: Og ákvað að blogga pínu.
Nú við skulum byrja á páska helginni miklu,við mæðgin fórum norður á föstudaginn langa og átti litla elskan mín að fara til pabba síns en það er nú ekki hægt að stóla á hann frekar en fyrri daginn,því þegar Hákon hringdi í hann til að tilkynna honum það að hann væri komin þá var hann á Ólafsfirði,com on.En ég skutlaði bara drengnum til afa síns. Og brunaði svo sjálf til hennar Heiðu.Og hún Silla mamma hennar Heiðu bauð mér svo í kvöldmat og var boðið uppá ekkert annað en hamborgarahrygg með öllu tilheyrandi. Svo var nú bara brunað heim til Heiðu í shower því við vorum á leiðinni á ball í Miðgarði. Svo þegar maður var búin að skola af sér skítinn þá tók bjórþamb við:haha:. Svo var mikið tjúttað í miðgarði.Svo daginn eftir vakna ég alveg að drepast í maganum og hleyp framm á bað en get ekki opnað inná bað þannig að ég hleyp inní eldhús og þá kemur bara gusan í eldhúsvaskinn:^) Svo fer ég bara aftur inní herbergi(ég þreif samt alla æluna úr vaskinum,ef þið hafið verið að velta því fyrir ykkur)svo vakna ég aftur með þessa þvílíka magaverki og hendi aumingja Heiðu útaf baðherberginu og kalla svo í hana og skipa henni að koma með fötu þannig að ég sat á klósettinu ælandi ofan í skúringarfötuna hennar Heiðu. Svo fór ég með mína ástkæru fötu aftur inní herbergi.Svo er maður bara vakin um 7 leytið í rafmagnsleysið.Svaka skemmtilegur dagur það en það rættist aðeins úr honum því að ég hitti Ebbu,Siggu og Áróru á kaffi krók.Svo kom sunnudagurinn og þá ætlaði mín sko aldeilis að hrynja í það en nei takk kærlega fyrir Steinunn Hlín það var alveg sama hversu mikið magn af alkahóli ég þambaði ég varð bara ekkert full:evil: ég var nú bara ekkert sátt með þessa helgi en það er allt í lagi því ég hitti svo margar vinkonur mínar fyrir norðan,Nema Gunnsu,Tinnu og auðvitað hana Hálfgerði rugludall(Vagga sem sagt) En ég vona að ég hitti þær sem fyrst:haha:

En svo líka núna á þríðjudaginn fór nunnan og verslaði sér nýjan bíl hann er ógeðslega flottur þetta er RAUÐUR golf og ég er svo mikil gella að það hálfa væri nóg.

En svo líka á mánumdaginn eftir rúma viku er ég að fara í keiluskurð og má ekki vinna í 2 heilar vikur(ég á eftir að drepa mig einn góðan veðurdag á öllum þessum veikindum) Svo var líka verið að bjóða mér aðra vinnu (með hinni vinnuni minni)
Svo líka annað ég fékk líka þessa þvílíku flugu í hausin um dagin að flytja norður á Akureyri hvernig líst ykkur nú á þð dömur mínar og frúr.
Nú er ég búin að blogga nóg þannig að Gunnsa mín ég vona að þú getir skemmt þér í prófalestri og gangi þér vel í prófum.
En þangað til næst kveður nunnan í kút

Og p.s. látið mig endilega vita ef það er hittingur í nánd

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 17:39:48 / mongo

Sumarbústaðar ferðin

Vá ég og sonurinn skelltum okkur í sumarbústað til pabba um helgina.
uppá bakkanum á meðan hann var í afslöppun.Þetta var ekkert smá góð helgi það var bara setið og sötrað rauðvín eða hvítvín með matnum og svo var nátturulega sötraður bjór í heitapottinum.Og svo var ógeðslega mikið spilað um helgina. Og svo fórum ég og Guðmundur(sonur konunar hans pabba) í búðina á laugarvatni og VÁ talandi um okur það var verið að rukka 500kr fyrir einn skitin snakkpoka8| og ekki nóg með það pabbi fór svo á sunnudeginum og ákvað að kaupa í og já hann kostaði rúmlega 1000kr og þetta var bara einn líter.Kommon er ekki allt í lagi með þetta fólk þarna.Og Hákon Helgi hann vildi bara hellst eiga heima í heitapottinum, á sunnudagin ákváðum við mæðgin að fara í heitapottinn og mér fannst hann vera svo ógeðslega heitur en hann Konni minn fannst þetta bara svo afslappandi og þægilegt og ég ætlaði aldrei að ná honum uppúr,ég sat þarna eins og soðið svín:^):haha: Og hann var ekkert sáttur við það að fara heim til sín.Hann nefnilega eignaðist vinkonu(kærustu hans Guðmundar) í bústaðnum og var ekkert alveg til í að kveðja hana,en það tókst á endanum að "draga"hann út;)

En nóg um það nú eru að koma páskar og hvað á að gera sniðugt dömur mínar og herrar um páskana?

En þangað til næst kveður nunnan í kút

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 17:32:50 / mongo

Við dönsum til að gleyma

Já hvað haldiði Nunnan ætlar að skellja sér á tjúttið í kvöld8)
Og ég get sagt ykkur það að það hefur ekki skeð í há herrans tíð,eða síðan ég fór á djammið með þeim Tinnu minni og henni Gunnsu gellu og sagði víst öllum frá nýjustu kaupunum sem nunnan gerði:haha:
Já og það var sko tjúttað:D ég dansaði svo mikið að ég sandpússaði hælin af öðrum skónum mínum,já gott fólk ég pússaði hælin af skónum mínum.Ég tók eftir þessu bara um daginn þá var mín á leið í afmæli og mér fannst eithvað skrýtið að ganga í þeim þannig að ég gáði hvað væri í gangi og já þá var bara hællinn farinn:$
Já ég hefði átt að grobba mig aðeins meir af þessum skóm sem ég var nýbúin að gera þessi kostakaup á:frown:
En svona er þetta bara.
En þangað til næst bið ég ykkur bara vel að lifa og svo kveður nunnan bara í kút

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 16:34:05 / mongo

Það er náttúrlega nauðsynlegt að færa lestrarbækurnar til nútímans svo börnin finni sig í þeim:


Bekkjarafmælið

Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann.  Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim.  Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli.  Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar  Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum.  Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni.  Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar - "#%=&#$&/(=!z#$!/!=!
Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var  Ríta Lín?
Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum.
Hún var orðin alltof sein í afmælið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 22:54:37 / mongo

Jújú

Jújú minnið er ekkert að fara neitt einsog ég hélt fram hér í síðustu færslu þau Sylvía Dögg og Þórður eignuðust einn strák 16 merkur og 53 cm

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 18:38:47 / mongo

Til hamingju

Ég vildi bara óska þeim Sylvíu Dögg og honum Þórði innilega til hamingju með strákinn.Ég man bara ekki alveg hvenar hann fæddist og ég er næstum 100% viss um að þetta var strákur(svona fer minnið með mann þegar maður eldist:$)
Ég vildi bara koma þessu frá mér.
En þangað til næst kveður nunnan í kút

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 16:25:42 / mongo

Jíbbi

Vá maður lifandi hvað ég er glöð í dag,við höfum nefnileg ekki komist á netið í tvær vikur eða eithvað svoleiðis og maður var komin með þvílík fráhvarfs einkenni.
Ég er mikið að spá í því að skella mér í skóla og fara að læra þroskaþjálfan:D og ég get sagt ykkur það að það leggst bara drullu vel í mig að fara að setjast aftur á skólabekk.En mig kvíður líka þvílíkt fyrir(ef ég fæ inngöngu)
Og svo fæ ég 5 vikur í  SUMARFRÍ á kaupi ðg þetta er í fyrsta skiptið á ævi minni sem ég fæ SUMARFRÍ á kaupi og ég get ekki beðið ég byrja 12 júní og er til 17 júlí:haha:

Og svo fer nú að líða að páskum og er mér boðið í 3 eða 4 fermingaveislur og ég er að fara í fyrstu ferminguna um næstu helgi og svo aftur helgina eftir það en ég veit ekki hvort ég fari því að kallin hann pabbi var að bjóða okkur í sumarbústað akkúrat þá helgi,þannig að maður sleppi ekki bara ferminguni,og fer í sumarbústað í staðinn,svo um páskana þá er ég víst að fara norður í fljótin í simarbústainn okkar og mig hlakkar rosalega til.

En þangað til næst þá kveður nunnan í kút

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 14:20:45 / mongo

Vá talandi um það að vera duglegur

Já mín var ekkert smá dugleg um helgina gott fólk. Á meðan Hákon Helgi var hjá pabba sínum um helgina þá ákvað ég bara að klára herbergið hans Hákonar,ég kláraði að mála, setti upp geggjaðan spiderman borða,hengdi upp hillu og eitt stykki spiderman ljós og spiderman límmiða:lol: Og það er ekkert smá flott þið getið séð myndir af því inná barnalandi.

Svo fékk ég að vita í gær hvað hefði komið útur rannsókninni sem ég fór í á miðvikudaginn síðasta og þannig er mál með vexti að ég er á leið í keiluskurð.

En ég nenni nú ekki að tala um það,en ég held að ég sé að verða gömul:S ég hef bara enga löngun eða  áhuga á að fara á djammið lengur:( alla helgina þá smakkaði ég ekki dropa nema á fimmtudag þegar ég fór út með Árný Rós)en það var líka þannig að ég fékk mér einn bjór og ég var tvo tíma með hann(HALLÓ ég held að það sé ekki í lagi með mig)
 Svo er ég nú að spá í það að kíkja kanski norður um páskana það er víst ferming og læti þannig að maður verður víst að láta sjá sig:lol:
En ég veit ekkert hvað ég ger sagt meira nema bara, þangað til næst kveður nunnan í kút


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 23:50:27 / mongo

Kostakaup

Já gott fólk ég fór í bæinn í dag með múttu túttu og ákvað að drepa tímann meðan mamma var á einhverjum fundi að fara í outlet og þar missti ég mig næstum því:D ég keypti mér ógeðslega flotta kápu(sem ég ætla að fara í á djammið næstu helgi)  sem átti að kosta 16þúsundkr en ég keypti hana á 1500kr8| og svo keypti ég mér bol á 500kr og skó á 990kr.Og þá var tíminn búinn(ég hafði bara klukkutíma)og ég mæli með þessari búð það er ekkert smá mikið af flottum fötum þar fyrir skít á priki.
Og svo þegar ég var búin að ná í kjellinguna á fundinn þá bauð hún mér út að borða til að bæta upp fyrir gærdaginn:lol: og svo þegar við komum heim þá fórum við á video leiguna og tókum eina mynd og horfðum á hana.

Jæja ég veit ekkert hvað ég get sagt meira,en bara þangað til næst kveður nunnan í kút:haha:



» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 13:08:58 / mongo

Til hamingju konur með daginn

Jæja gott fólk haldiði að nunnan eigi ekki bara afmæli í dag8)
Já ég á sko afmæli í dag og er orðin heil 24 ár síðan heimurinn fékk þá blessun að ég skildi koma:haha:
En þetta er nú frekar skrýtin afmælisdagur því það er eingin til að halda uppá hann með mér:cry: Hákon Helgi er fyrir norðan,mamma er að fara að vinna og Jón Ingi og Bryndís eru í bænum:frown: Og kjellingarskassið hún mamma mín ætlar að henda mér út á eftir klukkan 2 því það er einhver kona að koma til hennar í heimsókn og þetta er eithvað trúnó dæmi. En ení veis þá fórum við mamma í tvær búðir hérna í gær að skoða föt og í fyrri búðinni fundum við ekki neitt en í seinni búðinni þá fann ég eina peysu og síðerma bol og kjellingin ákvað að gefa mér það í afmælisgjöf og hvað haldiði að herlegheitin hafi kostað?? 3409 Fyrir eina peysu og síðermabol, þetta eru bara kosta kaup:lol:Alltaf rekst maður á eithvað sniðugt.
En ég er að spá í að fara í nettó og finna mér eithvað gott til að elda handa sjálfri mér

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 22:56:01 / mongo

Enn ein sjúkrasagan

Já gott fólk það er alltaf nóg að gera hérna hjá nununni:lol:
Þannig er nú mál með vexti að ég fór til læknis á miðvikudaginn síðasta og hann vildi bara leggja mig inná staðnum:( en ég slapp við það en var svo heppinn að það var ákveðið að leggja mig inn daginn eftir til að setja mig í einhverja kviðarholsspeglun og já já allt í lagi með það,og svo vaknar nunnan þarna á sjúkrahúsinu upp dópuð og fín:D og var látin bíða í einhvern klukkutíma eftir lækninum mínum(sem kom svo ekki) svo var minni bara rúllað úppá fæðigar og kvennadeild:| og var látin bíða þar eftir fja.... lækninum mínum(sem kom aldrei) þannig að um kvöldið fór ég að spyrja alla hvar læknirinn minn væri og hvað hefði verið að mér?þá komst ég að því að læknirinn minn hefði farið veikur heim og ég ætti bara að bíða þangað til á morgun þegar hann kæmi aftur:evil: en svo var nú ein hjúkka þarna sem sagði mér að botnlanginn minn hefði verið tekin og hún vissi ekki meir.Ok og svo um nóttina gat ég ekki sofnað og bað um svefnpillu til að geta sofnað og kjellurnar bara já já ekkert mál Steinunn mín og heyriði ég gat ekki sofnað fyrr en um 7 um morguninn (og komst svo að því seinna að þetta hefði verið róandi:$) og var svo sparkað framm úr rúmminu um níu svo hægt væri að búa um það:( HALLÓ búa um rúmið bara svo ég gæti lagst aftur uppí það:frown: en ení veis þá fór ég bara aftur uppí rúm og beið eftir lækninum mínum,en nei takk fyrir gott fólk hann var bara enþá lasin og ég botnlangalaus og allslaus:cry: en svo hringdi kalluglan loksins um kvöldið og talaði við einhverja hjúkku og hún sagði að ég vildi fá að vita hvað hefði verið gert við mig og hann sagði bara "ég segi henni það bara á morgun" en hún skipaði honum að aegja mér það í síman sem hann svo gerði og þá fékk ég loks að vita að legið hefði verið svo bólgið að það var komin sýking í botnlangan þannig að hann var bara rifin úr einsog ekkert sé.Og ég fékk loksins að fara heim á laugardaginn með fullan "poka" af verkjatöflum og á að taka því rólega eithvað og má ekki fara í vinnu í tvær vikur:evil:
Ég meina það gott fólk að ég held að ég sé að taka við sjúkrahúsviðverunni af Guðrúnu Hörpu hérna í denn:S

En jæja þangað til næsta sjúkraskýrsla kemur kveður nunnan í kút

» 7 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 16:03:32 / mongo

Ég var víst klukkuð

Og svona er klukkið mitt

4. Störf sem ég hef unnið um ævina: Fisk,sjoppum,sambýli,ellideild

4. Bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur: Madagasgar,Notebook,Kalli og súkkulaðiverksmiðjan Two weeks notice

4.Staðir sem ég hef búið á: Sauðárkrók,Dalvík og Akranes

4. Sjónvarpsþættir sem eru í uppárhaldi: O.C, Simpsons,friends og Desperet houswifes

4.Staðir sem ég hef heimsótt í fríi: England,flórída og fullt af sumarbústöðum

4. Síður sem ég heimsæki daglega: Ebbu,Vöggu,Tinnu og heim krúttsins

4.máltíðir sem ég held uppá: Kjötsúpan hennar mömmu,kj´klingarétturinn hennar mömmu,kjúklingur og salat

4Bækur sem ég les oft: Margar

4.Staðir sem ég væri til í að vera núna: Kanarý,danmörk hjá Hildi,ítalía og sumarbústaðnum okkar útí fljótum

4:strákar sem ég ætla að klukka:: engan

4. Stelpur sem ég ætla að klukka: Ebbu,Vöggu,Tinnu, og Sunnu frænku


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 16:54:32 / mongo

Ekki er öll vitleysan eins

Já gott fólk eins og stendur hér fyrir ofan þá er bara ekki öll vitleysan eins,mín fór í sínu mesta sakleysi í krabbameinsskoðun síðastliðinn föstudag og já já allt í lagi með það þetta var nú bara eins og í frystihúsi(þetta var svo mikil færibanda vinna) en ení veis, ég er búin að vera að drepast í maganum síðan þá og þurfti meira að segja að fara heim úr vinnnuni í dag því mér var svo illt og ákvað að hringja í frystihússtjóran(kvennsjúkdóma læknirinn) og hvað haldiði?? ha það sprungu enhverjar fja..... blöðrur á eggjastokkunum hjá mér og hann sagði að ég ætti bara að vera heima þangað til verkirnir myndu hverfa:klikk: Getur verið að einhver manneskja sé jafn óheppin og ég?? Ég bara spy???

En nóg um það ég ákvað að skreppa í borg óttans í gær og ætlaði nú að versla af mér rassgatið en það endaði bara með því að ég komst  bara í tvær búðir og gat nú verslað það einhvern slatta en samt ekki nóg.

Jæja nenni ekki að rita meir og segi því bara nú kveður nunnan í kút
āĚ̍牢

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan